Datt í hug að setja inn nokkrar myndir frá sumrinu 2002, en þær eru af gilinu sem jeppi valt ofaní um síðustu helgi 18 feb. 2006. Það hafa margir orðið fyrir barðinu á þessu gili og sloppið misvel frá. Sjálfsagt hafa líka margir farið þarna oft um án þess að vita af því. Það sést mjög illa úr fjarlægð.
Það verður að fá sér göngutúr til að skoða þennan stað að sumri, það liggur engin slóði á þenna stað og best að hald því þannig.