Við Jonni (Ford Ranger) ákváðum að skella okkur á Góublót Austurlandsdeildar í Kverkfjöllum. Fórum Fljótsdalsheiði og yfir Kárahnjúkastíflu og svo beina leið inní Kverkfjöll. Vorum í förum allan tímann en vorum samt um 11tíma á leiðinni.
Á laugardeginum var ekið aðeins í kringum Kverkfjöllin, kíkt í bað í íshellinum og blótað um kvöldið.
Á sunnudeginum ákváðum við að fara Möðrudal og austur yfir Möðrudalsfjallgarð.