Loksins kom að fyrsta túrnum á þessu seasoni og var ákveðið að kíkja á gosleyfarnar á Vatnajökli, veðurfréttirnar lofuðu góðu veðri í nokkrar klst. á sunnudeginum og því var ákveðið að fara af stað kl. 4 um morguninn. Við fórum á tveim bílum þ.e. Gunnar bóndi á Gunnarshólma LC-80 44", og Tóti útlagaformaður á Patrol 44". Sjálfur var ég nú bara túristi með tóta vegna naglaskorts í dekkjum og annara smáatriða sem ekki eru tilbúin fyrir veturinn, my mistake.