Skruppum saman þrír (ég, Klemmi og Einar G.) eftir vinnu upp á Hellisheiði aðeins að leika okkur. Einar var að fjárfesta í þessum prýðis Patrol og þurfti auðvitað aðeins að prófa, fyrir utan skemmtilegt diskó á ljósunum og lausar reimar þá var hann bara að gera góða hluti!
Sannar bara enn og aftur að það þarf ekki að fara langt og þarf ekki að vera lengi að því að skemmta sér. Stórir og litlir geta líka alveg leikið sér saman. Fleiri myndir HÉR. Myndataka: Klemenz G. Klemenzson og Einar Gíslason (mín myndavél var dauð, RIP).