fyrsta ferðin á Willys, hann stóð eins og hetja þótt að ökumaðurinn hafi verið með smá klaufaskap, enda byrjandi í þessu sporti. Villi á 4runner 35" Siggi á Pajero 35" Guðjón Torfi á Korando 35" Bjarki á Hilux 38" Óli á Patrol 38" og ég Willys 36". þetta gekk allt voða vel hjá okkur fyrir utan það að Sigga tókst að hitta á stein og eyðileggja dekk. var hann því dreginn alla leið heim. hann stóð sig nú samt vel miðað við það að vera á pajero, mátaði spottan nokkru sinnum og festi sig bara einu sinni niður á móti... sjálfur festi ég mig tvisvar af algjörum klaufaskap...