Skruppum í sunnudagsbíltúr á kaldadal. Byrjuðum að hitta á þrjá Póverja í bíltúr á Golf. Þeir voru léttklæddir á blankskóm og við skipuðum þeim að snúa við. Skruppum svo lengra uppeftir í skemmtilegu færi. Á leiðinni til baka rákumst við á tvo drengi sem höfðu ekið útaf í brekkunum að Sandkluftarvatni. Bíllinn rambaði á barminum og vinirnir sátu á dekkjunum til þess að hann færi ekki fram af. Ég skellti í hann spotta til að hann rúllaði ekki niður og náði að strekkja á spottanum nóg til þess að geta sest inn og bakkað upp, Því enginn annar þorði inn í bílinn.