Fórum á 4 bílum uppí Snæfelsskála á föstudagskvöldi. Svo var haldið á jökul eldsnemma morguninn eftir og haldið í vesturátt eftir hábungunni og út á Kverkfjöllin. Snerum tilbaka vegna slæms veðurútlits og gistum aðra nótt í Snæfelli. Á sunnudeginum rúntuðum við yfir stífluna óáreittir og við Upptyppinga skildu leiðir. Einar Sveinn, Eiður og Ási fóru í Dyngjufalladal og svo norður, en við Erla fórum Hvannalindir, Kverkfjöll og svo austur.