Fórum á 3 bílum síðdegis á laugardeginum í rólegheita fjölskylduferð. Meira hafði snjóað á svæðinu, sérstaklega þegar innar dró, en ég hafði búist við, og hafði örugglega bætt heilan meter á eftir að hlýindunum lauk um áramótin. Nokkrir bílar voru innfrá þegar við komum, þannig að við höfðum góðar slóðir að keyra í. Þegar innar dró var þungt færi utan slóða og hafði sjáanlega verið erfitt fyrir fyrsta bíl að fara um jarðfallið. Veðrið var frábært allan tímann, stjörnubjart og stillt á leiðinni innúr og bjart og fínt á leiðinni heim á sunnudeginum.