Lögðum af stað á föstudagsmorgun á fjórum bílum, þ.e. ég, Skúli co. Dagur, Tryggvi, Jón Ofsi co. Barbara. Stefnan var ákv. Kjalvegur, Eyfirðingavegur, Sprengisandsleið, Bárðardalur, Hellugnúpsskarð og Illugastaðir í Fnjóskadal. Einn bíll helltist úr fljótlega úr lestinni vegna álaga coarans. Er þetta ekki í fyrsta skiptið sem þetta gerist og er nú svo komið að menn reyna að tryggja sig sérstaklega fyrir þessum cóarar.