Stormsveitin, jeppaklúbbur starfsmanna Flugmálastjórnar fór í dagsferð 25. febrúar. Ætlunin var að dóla eftir línuveginum norðan Skjaldbreiðar en þegar fregnir bárust af góðu færi á Langjökli var stefnan sett á jökulinn og varð úr frábær ferð breyttra og óbreyttra bíla.