Farið á tveimur bílum í dagsferð á Langjökul um Kjöl og Skálpanes. Veður hið besta eða hægviðri, léttskýjað og hiti um -10°C. Þykknaði upp og hlýnaði er líða tók á daginn og var kominn frískur vinnukaldi þegar farið var um Bláfellsháls á bakaleiðinni.