Góð ferð í góðum félagsskap. Hópurinn hittist á Hvolsvelli og þaðan var ekið inn á Emstruleið. Síðan var ekið upp Sléttjökul áleiðis inn á Mýrdalsjökul og svo niður Botnjökul (með allt í botni) og inn í skála Útivistar við Strút. Kalt og mjög bjart. Daginn eftir var ekið yfir Mælifellssand og í Emstrur og til baka á Hvolsvöll. Bætt hafði töluvert í vind og var talsvert fjúk á þeirri leið.