Í tilefni "snjó-komunnar" var skundað í dagstúr frá Rvk í fylgd fríðs hóps ferðalanga. Að þessu sinni var ekin hefðbundin leið frá Gjábakkavegi um Þjófahraun norður í Lambahlíðar (Tjaldafell) og síðan sömu leið til baka. Færið frískandi, nokkuð þungt á köflum og ekki alveg laust við ójöfnur. Veður var bara ágætt í það heila, en inn á milli gætti sakleysilegra élja.