Fór með Þórdísi, Björgvin og Benedikt ásamt vinnufélaga Björgvins frá USA (Bob) og Dóra úr vinnunni og hans fjölskyldu og Klemma og fjölskyldu í sunnudagsbíltúr þann 22. október 2006. Byrjuðum á að stoppa í Vörðu, kofanum sem Dóri og Klemmi hafa leigt í vetur, þar skyldum við þá eftir og ég og Þórdís, BB1, BB2 og Bob héldum áfram að Landmannalaugum, enginn fór í laugina samt, lélegt! Upp að Ljótapolli og svo upp að Hrauneyjum og svo beinustu leið í bæinn.
Fleiri myndir er að finna í myndasafninu mínu.