Rakst á þennan bíl á Nesjavallaveginum og bara gat ekki annað en tekið af honum myndir þar sem þetta er ekkert smá flottur bíll. Mér skilst að þetta sé Sidekick body og með Dana 30 að framan og 40 að aftan og Volvo turbo vél í húddinu. Heildarþyngd um 1500 kg. Ef það er ekki rétt þá vona ég að einhver leiðrétti mig. Geggjuð græja!