Frábærir ferðafélagar, frábært veður og frábær matur, alveg frábær ferð. Mikill
snjór frá Gullfossi og alveg innundir Innri-Skúta, færi þungt á köflum. Aðal senuþjófurinn í þessari ferð var þó Dodge Ram trukkurinn hans Gunnlaugs á 54" dekkjunum og Unimog hásingum, alveg magnaður trukkur, eða eins og Kaninn mundi
segja, "jaw dropping". Mér finnst þessar hásingar algjör snilld, sagt er að þær séu samtals 200kg þyngri en hásingarnar sem fyrir voru, þessar hásingar eru gerðar fyrir mikinn burð og svona stór dekk svo það ætti vonandi ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að eitthvað brotni. Þessi bíll hans Gunnlaugs virkaði mjög vel og virtist vera í það minnsta, skrefinu framar en 49" Fordarnir sem voru líka með í för og voru þangað til um helgina, ásamt öðrum 49" bílum, öflugustu jepparnir í flestu færi.