Datt í hug að deila með ykkur myndum sem ég tók um Verslunarmannahelgina 1988 af Range Rover sem ætlaði sér um of og fór á kaf í Markarfljótið rétt neðan við Húsadal. Sem betur fer urðu engin alvarleg slys á mönnum þótt lengi vel vissum við ekki hvort fleiri væru í bílnum. Ekkert var hægt að gera okkar megin frá, en björgun barst frá hinum bakkanum eftir dálítinn tíma.