Lagt á Vatnajökul í ferð með ferðafélaginu Útivist, með einvalaliði. Jökulheimar - Pálsfjall - Grímsvötn - Jökulheimar. Var meiningin að fara úr Grímsfjöllum í Kverkfjöll og Snæfell en reyndist hvorki veður né færð í það. Verður gert næst. Stórskemmtileg ferð þrátt fyrir ótrúlega erfitt færi og bandvitlaust veður. Fararstjórar og samferðamenn fá bestu þakkir fyrir.