Ný vefsíða. Leiðrétting á vef-föngum félagsmanna.

Nú fer að nálgast sá tími sem ný vefsíða klúbbsins tekur við. Vegna þeirrar ástæðu að ekki er hægt að yfirfæra lykilorð félagsmanna á nýju síðuna verða menn að vera vissir um að vef-fang hvers og eins sé rétt. Notendanafnið flyst yfir á nýju síðuna.

Ástæðan fyrir þessu er að ný lykilorð verða send á þau vefföng félagsmanna sem eru í kerfinu.

Þeir sem eru ekki með rétt skráð vefföng geta ekki skráð sig inn á nýju síðuna.

Þegar ný vefsíða kemur í loftið og menn vilja skrá sig inn opnast ákveðið ferli sem verður að útfylla. Ný lykilorð verða þá send á það póstfang sem er í núverandi kerfi. Síðan geta menn breitt því að vild.

Ferlið til að leiðrétta eða athuga hvort veffang sé rétt er:

1. Skrá sig inn.

2. Smella á “Spjallið” uppi á bláa borðanum.

3. Smella á “Stillingarnar mínar” fyrir neðan svarta borðann.

4. Smella á “Prófíll”

5. Smella á “Breyta notendastillingum”

6. Ef veffangið er ekki rétt skal leiðrétta það. Veffangið þarf að skrá tvisvar. Smella síðan á “Senda.

Skildu eftir svar