Opnir fundir með útivistarfólki

4x4_3x15

Samtök útivistarfélaga, SAMÚT, efna til opinna funda með útivistarfólki til að ræða mál sem efst eru á baugi þessa stundina, m.a. frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga sem nú liggur fyrir Alþingi.

Á fundunum munu fulltrúar stjórnmála- flokkanna m.a. svara þessum spurningum:

  • » Er það stefna flokksins að náttúruverndar- lögin verði samþykkt án þess að tekið hafi verið tillit til athugsemda frá útivistar- félögum?

  • » Er það stefna flokksins að tryggja rétt alls almennings til að ferðast um þjóðgarða og þjóðlendur óháð ferðamáta?

  • » Er það stefna flokksins að samþykkja lokað einkaðgengi að náttúruperlum eða þjóðlendum?

    Umræður og spurningar úr sal. Allir velkomnir!

Reykjavík

Hótel Natura (Loftleiðir), þriðjudaginn 5. febrúar kl. 20:00.

Akureyri

Golfskálinn Jaðri,
föstudaginn 8. febrúar kl. 20:00.

Skildu eftir svar