Óskum eftir myndefni fyrir sýningu Ferðaklúbbsins 4×4 í Fífunni

Sögunefnd er að taka saman efni frá 30 ára sögu klúbbsins. Nefndin óskar eftir að félagsmenn fari nú í safnið sitt og dragi fram úrvalsefni sem er þess virði að sýna á sýningunni og komi því til okkar.

 

Við erum fyrst og fremst að leita að eftirfarandi tegundum af efni:

 

1) Úrvals ljósmyndir sem hægt er að stækka upp og varpa á skjá eða prenta á plaköt. Þetta þurfa helst að vera myndir á stafrænu (digital) formi og í sem bestri upplausn. Myndirnar eiga að vera af bílum og fólki á fjöllum og ekki síður stemmingsmyndir sem sýna töfrana á fjöllum, þ.e. jeppa og fólk í glæsilegu umhverfi. Mikilvægt er að vita hvar og hvenær (a.m.k. árið) myndir eru teknar og einnig hverjir eru á þeim, því meiri upplýsingar því betra.

 

2) Myndir frá fyrri sýningum klúbbsins – Mikilvægt að fá sem gleggstar upplýsingar um myndirnar, hvaða sýningu er um að ræða, hvaða bílar og fólk er á myndinni o.s.frv.

 

3) Myndbönd í góðum gæðum, þ.e. vel tekin og sem sýna ferðalögin og upplifunina á fjöllum. Myndböndin mega vera á VHS formi en þó ekki löng þar sem mjög tímafrekt er að yfirfæra slíkt efni. Best er að fá myndböndin á stafrænu formi og þá helst svonefndu avi formi en þó ekki skilyrði. Myndböndin verða notuð til að varpa upp á skjái á sýningunni og einnig sett í safn klúbbsins.

 

Á sýningunni verður sérstakur salur fyrir sögu félagsins. Þar verður skjávarpi og stólar og önnur aðstaða við hliðina á veitingasölunni. Þar er ætlunin að hafa myndasýningar og myndefni á veggjum. Auk þess er ætlunin að bjóða þar upp á fyrirlestra félagsmanna um jeppa og ferðalög. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sig og jeppann sinn eða jeppasöguna sína með skemmtilegum og áhugaverðum hætti eru velkomnir að hafa samband við nefndina.


Í sögunefndinni eru eftirtaldir:

Árni Bergsson, s. 8996948, sigrun@sigrun.is

Eyþór H. Ólafsson, s. 8257101, eho@eimskip.is

Ólafur Ólafsson, s. 6641072, oolafsson@ossur.is

Þorgímur Stefán Árnason (Toggi), s. 8605260, thorgrimur@hs.is

Þorvarður Hjalti Magnússon, s. 8922950, hjamag@rarik.is

 

Hægt er að senda efni með tölvupósti á eho@eimskip.is og/eðahjamag@rarik.is ef ekki er um of stórar skrár að ræða, þ.e. minna en 6 MB eða svo. Annars er best að koma því til okkar á lykli, diski eða spólu eða við nálgumst það til ykkar.

Skildu eftir svar