Eyjafjarðardeild 4x4 þrettándagleði 2023

Joi Hauks
Posts: 151
Joined: 2016-12-25 18:Dec:th

Eyjafjarðardeild 4x4 þrettándagleði 2023

Postby Joi Hauks » 2023-01-08 18:Jan:th

ÞRETTÁNDAGLEÐI EYJAFJARÐARDEILDAR 4X4 2023

Jæja félagar nú er komið að þrettándagleði Eyjafjarðardeildar 4x4 og verður hún helgina 13-15 janúar 2023.
Eins og vanalega þá verður brenna og flugeldasýning á laugardeginum og þetta árið verður hún stórglæsileg.

Þeir sem koma með ung börn eru beðnir að koma á laugardeginum.
Gjald fyrir gistingu er kr.2000 hvort sem menn gista eina eða tvær nætur, frítt fyrir börn yngri en 16 ára, og gjaldið greiðist á staðnum.
Það verður farið frá Orkuni við Hörgárbraut kl.17.30 á föstudaginn 13 janúar og kl.09.00 á laugardaginn 14 janúar.
Menn sjá sjálfir um mat og drykki en það er boðið upp á Hafragraut í morgunmat á laugardag og sunnudag.

Félagar eru beðnir að skrá sig á Facebook-síðu okkar eða á heimasíðu F4x4.is og láta vita hvort þeir komi á föstudegi eða laugardegi og eins hvort menn gisti eina nótt eða tvær.
Ef veður og færð leyfa þá verður farin einhver ferð á laugardeginum.
Það eru allir velkomnir á þrettándagleði Eyjafjarðardeildar 4x4

Kv
Eyjafjarðardeild 4x4

sindri thorlacius
Posts: 3
Joined: 2017-02-09 18:Feb:th

Re: Eyjafjarðardeild 4x4 þrettándagleði 2023

Postby sindri thorlacius » 2023-01-11 23:Jan:th

Mæti gisti tvær nætur


Return to “Eyjafjarðardeild”

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests