Eyjafjarðardeild vinnuferð 22-24 sept.

Joi Hauks
Posts: 151
Joined: 2016-12-25 18:Dec:th

Eyjafjarðardeild vinnuferð 22-24 sept.

Postby Joi Hauks » 2023-09-18 08:Sep:th

Sælir félagar

Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4 boðar til vinnuferðar í Réttartorfu helgina 22-24 september 2023.
Stikunefnd boðar til stikuferðar laugardaginn 23 september.
Félagar ráða því hvort þeir koma á föstudegi eða laugardegi en eru beðnir að setja inn brottfarartíma sinn
á fésbókina hjá Eyjafjarðardeild 4x4.
Það er gert ráð fyrir að þeir sem koma á laugardegi fari snemma af stað (ca.07.00) vegna verkefna hjá Stikunefnd en
nú ætlum við að klára að stika það sem við byrjuðum á síðasta haust, við ÞURFUM 10-12 vaska menn/konur í það verkefni.
Félagar sem koma á laugardaginn geta ráðið hvort þeir gisti eða fari heim eftir matinn.
Félagar eru beðnir um að skrá sig á Facebook-síðu Eyjafjarðardeildar 4x4 fyrir miðnætti fimmtudaginn 21 sept.
Það verður boðið upp á mjög glæsilegan kvöldmat á laugardagskvöldið. (Þess vegna þurfum við að vita hver skráning verður)

Og eins og áður sagði þá hvetjum við alla til að mæta.

Kv.
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4

Return to “Eyjafjarðardeild”

Who is online

Users browsing this forum: Majestic-12 [Bot] and 26 guests