Sælir félagar
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4 boðar til vinnuferðar í Réttartorfu helgina 13-15 september.
Félagar ráða því hvort þeir koma á föstudegi eða laugardegi en eru beðnir að setja
inn brottfarartíma sinn á fésbókina hjá Eyjafjarðardeild 4x4.
Félagar sem koma á laugardaginn geta ráðið hvort þeir gisti eða fari heim eftir matinn.
Félagar eru beðnir um að skrá sig á Facebook-síðu Eyjafjarðardeildar 4x4 fyrir miðnætti fimmtudaginn 12 september.
Það verður boðið upp á mjög glæsilegan kvöldmat á laugardagskvöldið. (Þess vegna þurfum við að vita hver skráning verður)
Stikunefndin ætlar að klára að setja glit á stikur á Hafursstaðaheiði og eins að laga nokkrar brotnar stikur þar. Síðan verður vaðið yfir Skjálfandafljót stikað.
Síðan eru fjölmörg önnur verk sem þarf að vinna við skálann. Nú er tækifæri fyrir félagsmenn að mæta og hjálpa til við að hafa skálann okkar áfram sem ein þann besta.
Við viljum hvetja við alla félaga, nýja og gamla, til að mæta og hjálpa til.
Kv.
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4
Eyjafjarðardeild vinnuferð 13-15 sept.
Who is online
Users browsing this forum: No registered users and 0 guests