Prófun á loftnetum

jong
Posts: 122
Joined: 2016-12-09 08:Dec:th

Prófun á loftnetum

Postby jong » 2017-11-26 10:Nov:th

Ætla að deila hérna niðurstöðum úr prófunum á loftnetum fyrir handstöðvar.
Ég er búinn að vera að safna loftnetum og á nú fjögur fyrir Standard Horizon stöðvar. (Þessar sem voru í hópkaupunum fyrir nokkru síðan)
Image

Þessi fjögur prófaði ég með KVE520A mæli, og niðurstöðurnar eru í næstu mynd;
Image

Lóðrétti ásinn er standbylgjan, en lárétti er tíðni.
--Upprunalega loftnetið er línan lengst til hægri á grafinu. Beinu rásir klúbbsins eru allar neðan við kúrfuna þannig að þetta loftnet er ansi lélegt, en fínt til að senda á endurvarpana, sem eru hærra á tíðnisviðinu.
--Næsta loftnet er Nagoya 701 loftnet með silfruðu letri. Það er aðeins skárra en það upprunalega en með svolítið þröngt tíðnisvið.
--Síðan er Vertex VX 150MHz loftnet. Það virðist vera svolítið ofan við 150MHz sem er fínt í þessu tilfelli. Að auki teygir tíðnisviðið sig upp á við, þannig að loftnetið ætti virka sæmilega á endurvarparásunum.
--Siðasta loftnetið er Nagoya 701 með bláu letri. Það er neðar á tíðnisviðinu en hin loftnetin, en ætti að vera fínt á beinu rásunum.

Eini gallinn sem ég sé við Vertex VX 150MHz loftnetið er að það er alveg stíft og gefur ekkert eftir, öfugt við upprunalega netið og Nagoya netin. Ég býst við að ég muni nota bláa Nagoya netið og hafa Vertex netið með í hanskahólfinu til öryggis.

jong
Posts: 122
Joined: 2016-12-09 08:Dec:th

Re: Prófun á loftnetum

Postby jong » 2017-12-22 09:Dec:nd

Nú er að koma í ljós að KVE520a mælitækið gæti verið eitthvað furðulegt. Allavega er það ekki að gefa sömu niðurstöður og Rohde & Schwarz mælitæki sem teljast með þeim bestu.

jong
Posts: 122
Joined: 2016-12-09 08:Dec:th

Re: Prófun á loftnetum

Postby jong » 2017-12-30 12:Dec:th

Þá er maður loksins búinn að finna einhverja aðferð til að mæla útgeislað afl frá handstöðvum.
Reyndar er tækið búið að vera lengi til hjá mér.
Ég nota RTL-SDR móttakara sem er tengdur með USB við tölvu og forrit sem heitir Gqrx, en það er með stóran móttökumæli sem gefur upp tölugildin í dB beint.
Aflið er ekki vitað, en hlutfallslegt afl í dB á milli mismunandi loftneta fæst úr þessu.
Ég tengdi langar coax snúrur við móttakarann og lagði þær út, þar sem ég var með lítið loftnet. Samt þurfti ég að skrúfa stöðvarnar niður í 1W til að móttakarinn færi ekki í botn.
Ég prófaði bæði Baofeng stöðina sem ég nota fyrir amatörtíðnirnar og Standard Horizon HX400 stöðina sem ég nota á 4X4 rásunum.
Niðurstöðurnar urðu eiginlega þær sömu og með KVE-520a loftnets-skannanum. (Að vísu eru fleiri en ég sem virðast fá skekkju upp á við á grafinu á þesskonar mæli)
Besta (styttra) loftnetið fyrir Baofeng stöðina á amatörtíðni er sem fyrr Kenwood loftnet en ef lengd er ekki vandamál er það Nagoya 771.
Á 4X4 rásunum með Standard Horizon HX400 stöðinni var silfurlita Nagoya 701 best og "original" loftnetið kom næst, 2 dB neðar. Original-netið var langbest á endurvarparásunum.
Það var upp og ofan hvað gerðist ef maður setti lausan míkrófón á stövarnar. Á Baofeng stöðinni jókst aflið út um 1-2 dB en á HX400 töpuðust stundum allt að 3 dB.
Image


Return to “Allt annað”

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests