Sæl
Síðustu helgi (21 til 23 júní 2019) fór Skálanend ásamt nokkrum aðstoðarmönnum upp í Setur til að skipta út eldhúsinu. Nokkrir fóru á fimmtudegi til að taka niður gamla eldhúsið og undirbúa, þannig að hægt væri að byrja á fullum krafti á laugardagsmorgun.
Fyrst verk var að fjarlægja gamla eldhúsið sem var að nálgast 30 ára aldurinn og nokkuð lúið.
Mynd1
Panell var fjarlægður, en aðal ástæðan var að menn töldu raka vera í honum eftir leka, en það leit mikið betur út en áætlað var. Ný klæðning var sett á vegginn í eldhúsinu og klætt upp á nýtt meðfram glugga. Það verður mikið þægilegra að þrífa milli borðplötu og efri skápa með þessu móti.
Mynd2
Veður var alveg frábært og var nýja innréttinginn sett saman á pallinum fyrir utan húsið og flutt samsett.
mynd 3+4
Mikl breyting verður því allt er endurnýjað. Ný gaseldavél sett upp og á aðra stasetningu en síðast, sem gefur meira borðpláss. Gas leitt út úr húsi og settur upp gasskápur fyrir utan. Nýr eldhúsvaskur og blöndunatæki sett (sama staðsetning og áður). Efri skápar settir á suðurvegg og eru þeir alveg upp í loft.
mynd 5+6
Settum gömlu innréttinguna út og allt í einu, bara sí svona kveiknaði í henni .
mynd 7+8
Setrið alltaf jafn glæsilegt.
mynd 9
Ekki náðist að klára þetta alveg í þessari ferð heldur verður það gert næstu helgi.
Nýtt eldhús í Setrið
Re: Nýtt eldhús í Setrið
Sælir skálanefndarmenn.
Miklir dugnaðarforkar eruð þið með allri ykkar vinnu við Setrið skála Ferðaklúbbsins 4x4. Þetta er ekki á færi nema verkmenntaðra iðnaðarmanna sem vilja leggja á sig tíma og þrekvinnu fyrir félagsskapinn.
Eitt verður þó að fylgja með að það var góður smiður og fagmaður og vinnufélagi til margra áratuga Rúnar Sigurjónsson sem smíðaði allan frontinn á skápana á innréttinguna.
Mig hlakkar til að komast einn veturinn upp í Setur og njóta allra breitinganna.
Kv. SBS.

Sælir
Mikið rétt Sigurður varðandi frontana ( og þrekvirki okkar félaga). Frontar og hliðar eru meistarasmíði og gerir þessa innréttingu alveg stórglæsilega. Bara svo fólk átti sig á, þá eru botnar (grunnurinn) frá Ikea, en síðan er framhluti og sjáanlegar hliðar sérsmíðaðar af Rúnari. Við það fær innréttinginn alveg einstakt yfirbragð. Kostnaðarlega séð kom þetta vel út og er alveg frábær lausn, sem aðrir félagar ættu að líta til þegar þeir fara í svona framvæmd.

Who is online
Users browsing this forum: No registered users and 21 guests