Page 1 of 1

Eyjafjarðardeild 4x4 félagsfundur

Posted: 2022-09-02 11:Sep:nd
by Joi Hauks
Sælir félagar

Jæja félagar þá er komið að fyrsta félagsfundi komandi vetrar hjá Eyjafjarðardeildar 4x4.
Fundurinn verður haldinn þriðjudagskvöldið 6. september kl 20:00 í Hjalteyrargötu 12, húsi Bjsv Súlna.
Við munum fara yfir hvað gert var í sumar og segja frá hvað verður á dagskrá hjá okkur á komandi vetri.
Við munum kynna "Viðburða Dagatalið" okkar sem er komið inn á F4x4.is
Svo verður kaffi og "meððí" félagar geta þá rætt um hvort eitthvað sé framundan í bílabreytingum og sagt sögur.
Hittumst hress og kát og störtum þessu tímabili í góðum félagsskap.
Nýjir félagar eru endilega hvattir til að mæta og einnig hvetjum við eldri félagar til að taka með sér unga og eða áhugasama.

Kveðja
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4x4