Page 1 of 1

Eyjafjarðardeild vinnuferð 23-25 sept.

Posted: 2022-09-12 09:Sep:th
by Joi Hauks
Sælir félagar

Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4 boðar til vinnuferðar í Réttartorfu helgina 23-25 september 2022
Það er áætluð brottför frá Orkunni föstudaginn 23 sept. kl.18.30 og fyrir þá sem
vilja eða komast ekki á föstudaginn þá er brottför á laugardagsmorguninn 24 sept. kl.07.00 frá Orkunni.
Athugið að brottfara tími er frekar snemma á laugardagsmorgun vegna verkefna hjá stikunefnd.
Það eru næg verkefni og eins á að setja niður nokkrar stikur. Við hvetjum alla sem geta til að mæta
svo að öll verkefnin klárist. Félagar sem koma á laugardaginn geta ráðið hvort þeir gisti eða fari heim eftir matinn.
Félagar eru beðnir um að skrá sig á Facebook-síðu Eyjafjarðardeildar 4x4 fyrir miðnætti fimmtudaginn 22 sept.
Það verður boðið upp á glæsilegan kvöldmat á laugardagskvöldið. (Þess vegna þurfum við að vita hver skráning verður)

Og eins og áður sagði þá hvetjum við alla til að mæta.

Kv.
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4