Eyjafjarðardeild fundur og ferð.
Posted: 2017-03-02 21:Mar:nd
Sælir félagar
Fundur:
Næsti félagsfundur verður þriðjudaginn 7.mars kl.20.00 í húsnæði Bsv. Súlna norður sal.
Á fundinum verður farið yfir það sem er framundan á næstu mánuðum, ferðanefnd fer
yfir ferðir sem eru í mars og apríl. Á fundinum verður kynning á sigbúnaði
og farið verður yfir öryggisatriði varðandi ferðir á jökllum.
Önnur mál og kaffiveitingar.
Ferð á vegum ferðanefndar helgina 10 - 12 mars.
Ferðatilhögun er eftirfarandi, á föstudeginum 10.mars verður farið upp í Réttartorfu og gist þar.
Á laugardeginum 11.mars verður farið snemma af stað og stefnan sett á Gæsavötn, með einhverjum útúrdúrum
sem fara að vísu eftir veðri, gist verður í Gæsavötnum. Á sunndaginn 12.mars verður farið í Laugarfell og
ef menn vilja geta þeir skolað af sér í lauginni. Síðan verður lagt af stað heim á leið, það er gert
ráð fyrir að heimferð verði um Bárðardal.
Skráning í ferðinna er hér á síðunni f4x4.is og Facebook síðu Eyjafjarðardeildar 4x4
síðan geta menn líka skráð sig á félagsfundinum næsta þriðjudagskvöld, síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 9.mars
Gistigjöld eru kr.1500 í Réttartorfu og kr.5000 í Gæsavötnum
Hvetjum alla sem hafa áhuga á að koma með í þessa ferð til að skrá sig sem fyrst, þetta er kjörin ferð fyrir þá
sem eru nýbyrjaðir í fjallaferðum og gamlingja sem ekki hafa farið á fjöll lengi.
Kv.
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4x4