Skrá sig inn á síðuna.
Smella á “SKOÐA MYNDASVÆÐI”
Fyrir neðan græna flipann eru myndamöppurnar þínar ef þú hefur sett inn myndir áður.
Til að stofna nýtt myndaalbúm smelltu á “Bæta við albúmi“.
Setja inn heiti á myndaalbúmi. og smella á ” Stofna albúm“.
Í kassann “Lýsing” er sett ferðalýsing eða texti sem varðar myndir í möppunni.
Hægt er að flokka eða tagga myndamöppur með því að haka við viðeigandi texta. Tengjast þær þá því sen hakað er við.
Fyrir neðan kassann “Myndir” er tengillinn “Bæta við mynd(um)” smella á hann.
Þá opnast þessi skrá. Það eru tveir möguleikar hér. Annar er að smella á “Velja skrár” og hinn er að lýsa með músinni myndirnar úr myndamöppunni í tölvunni og draga þær inn á skrár-flötinn.
Þá eru myndirnar sóttar og birtast eins og hér fyrir neðan. Smella síðan á “Velja“.
Síðan er að velja “Birta myndaalbúm“.
Fyrir neðan “Forsíðumynd” er “Engin mynd valin” og tengillinn “Bæta við mynd(um)” Þessi tengill er ekki virkur ennþá. Fyrsta myndin í möppunni er því valin sem mynd á möppuna.