Uppgræðsluferð í Þjórsárdal

Umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4×4 er að skipuleggja uppgræðsludag í samstarfi við Hekluskóga.

Við tökum helgina 7.-9. júní til verksins, en aðal vinnudagurinn er laugardagurinn 8. júni.

Farið verður að Núpsskógi og Þórðarholti í Þjórsárdalnum, en þar hefur Ferðaklúbburinn 4×4 komið að uppgræðslu undanfarin ár.

Það verður frítt á tjaldsvæðið fyrir okkur, þessa helgi og grill í boði umhverfisnefndar, á laugardagskvöldið.

Nú er um að gera að taka helgina frá og gera ráð fyrir skemmtilegri vinnuferð í Þjórsárdalinn, en opnað verður fyrir skráningar þegar nær dregur.

Umhverfisnefnd

Skildu eftir svar