Sælir félagar
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4 boðar til vinnuferðar í Réttartorfu helgina 13-15 júní. Félagar ráða því hvort þeir koma á föstudegi eða laugardegi en eru beðnir að setja inn brottfarartíma sinn á fésbókina hjá Eyjafjarðardeild 4x4.
Félagar sem koma á laugardaginn geta ráðið hvort þeir gisti eða fari heim eftir matinn.
Félagar eru beðnir um að skrá sig á Facebook-síðu Eyjafjarðardeildar 4x4 fyrir föstudaginn 13 júní.
Það verður boðið upp á mjög glæsilegan kvöldmat á laugardagskvöldið.
(Þess vegna þurfum við að vita hver skráning verður)
Stikunefndin ætlar að klára að setja glit á stikur á Hafursstaðaheiði og eins að laga nokkrar brotnar stikur þar.
Síðan þarf að athuga með að stika vaðið yfir Skjálfandafljót.
Við þurfum að laga girðingu og vatnslögn að vanda og þrífa skálann og síðan eru mörg önnur smáverk sem þarf að vinna.
Við viljum hvetja við alla félaga til að mæta.
Kv.
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4
Eyjafjarðardeild Vinnuferð í Réttartorfu
Who is online
Users browsing this forum: No registered users and 3 guests