Ströngukvíslaskáli-image

Ströngukvíslaskáli

Húnvetningadeild Ferðaklúbbsins 4×4 hefur umsjón með Ströngukvíslaskála frá 1. október til 1. júní ár hvert.

Almennar upplýsingar

Staðsetning: Stendur við Ströngukvísl upp á hæð á Eyvindarstaðaheiði.
GPS: N65° 1.971′   W19° 25.8883′       format Decimal Minutes
Hæð: 560 m.
Gistirými: 32 manns.
Aðgengi: Læstur með talnalási.
Kynding: Viðarkamína, gasofnar og rafmagnskynding.
Eldunaraðstaða: Gaseldavél og gasgrill.
Rafmagn: Ljósavél
Panta gistingu: Hægt að panta skálann í síma 8665502 (Jakob) eða 8644820 (Björn).

Skálagjöld

Félagsmenn 2.000 kr.
Börn félagsmanna 13-16 ára 1.000 kr.
Utanfélagsmenn 3.500 kr.
Börn utanfélagsmanna 13-16 ára 1.750 kr.
Frítt fyrir börn yngri en 13 ára.

Upplýsingar um bankareikning til að greiða skjálagjöld: Kennitala: 620610-0540, Banki: 0307-26-6261

Ath. Sá sem pantar skálann er ábyrgur fyrir greiðslu á skálagjöldum allra sem gista.

Nánari upplýsingar

Skálinn skiptist í 3 svefnrými borðsal með kojum fyrir 10 manns, 2 herbergi (annað fyrir 8 manns og hitt fyrir 14 manns), forstofu og salernisaðstöðu.

Rafstöðvar eru við enda hússins í húsi 50m frá skálanum önnur er afkastamikil 14kw en hin er minni eða 6kw