Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Borði
Ferðaklúbburinn 4x4

Ný kveðja frá Umhverfisstofnun til félaga í Ferðaklúbbnum 4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Enn á ný hefur borist póstur frá vinum  okkar hjá Umhverfisstofnun.  Við fáum smá bland í poka, gotterí frá „stóra bróður“ – en við nánari skoðun eru bolsíurnar súrar, og kandísinn bitur.  Bréfið er svar við erindi sem stjórn  og félagi  í Ferðaklúbbnum 4x4  sendi til Umhverfisstofnunnar vegna hins  "dásamlega pósts" sem Umhverfisstofnun sendi til F4x4 föstudaginn 29.01. 2010 .


Efni: Akstur innan friðlandsins Þjórsárvera


Vísað er til erindis formanns Ferðaklúbbsins 4x4 sem barst stofnuninni 2. febrúar sl. þar sem óskað er eftir skýringum á bréfi sem stofnunin sendi til formanns og umhverfisnefndar ferðaklúbbsins þann 29. janúar sl.

Attachments:
Download this file (Fyrirspurnir til UST.pdf)Fyrirspurnir til UST.pdf[ ][ ]209 Kb
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 04. febrúar 2010 21:29 Nánar...
 

Félagsfundur 1. febrúar 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sveinbjörn setti fundinn en sú nýbreytni hefur verið tekin upp að nefndir innan klúbbsins koma til með að sjá um dagskrá félagsfundar F4x4. Var þessi fundur sá fyrsti með þessu fyrirkomulagi í umsjá Umhverfis- og Skálanefndar.

Sveinbjörn las upp tilkynningu frá stjórn F4x4 er varðar banaslysið á Langjökli 30. janúar síðastliðinn. Þarna var um að ræða eiginkonu Kristjáns Gunnarssonar, stjórnarmanns í Ferðaklúbbnum 4x4, Halldóru Benediktsdóttir ásamt sjö ára gömlum syni þeirra hjóna. Sendum við Kristjáni og hans fjölskyldu, ásamt öðrum þeim sem um sárt eiga að binda, okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 21:38 Nánar...
 

Slys á Langjökli 30. janúar 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Eins og félagsmenn hafa heyrt varð skelfilegt slys á Langjökli laugardaginn 30. janúar síðastliðinn þar sem kona og 7 ára drengur féllu niður í sprungu með þeim hörmulegu afleiðingum að konan lést. Þarna var um að ræða eiginkonu Kristjáns Gunnarssonar, stjórnarmanns í Ferðaklúbbnum 4x4, Halldóru Benediktsdóttir ásamt sjö ára gömlum syni þeirra hjóna. Eins og fyrr segir lést eiginkona Kristjáns, en sonur þeirra lifði slysið af og er nú á batavegi á Landspítalanum, hann er kominn af gjörgæslu og dvelur á Barnadeild Landsspítalans.

Þau hjónin voru þarna á ferð með hópi vinafólks og var ferðinni heitið inn að íshelli á slóð sem oft er ekin þegar þangað er farið.  Sökum minni snjóalaga en í venjulegu árferði hafði verið tekin sú ákvörðun að halda sig ofar í jökullinum  og fara áður farna leið niður að íshellunum enda ferðahópurinn þekktur fyrir að gæta varúðar á ferðalögum sem þessum.

Þetta sýnir okkur öllum að slysin gera ekki boð á undan sér.  Sendum við Kristjáni og hans fjölskyldu, ásamt öðrum þeim sem um sárt eiga að binda, okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Kristján hefur beðið um að komið verði á framfæri innilegu þakklæti til björgunarsveitarfólks, lækna og hjúkrunarfólks og er þeim óskum hér með komið til skila.

Stjórn F4x4.


 

Síðast uppfært: Mánudagur, 01. febrúar 2010 23:33
 

Kveðja til félaga í Ferðaklúbbnum 4x4 frá Umhverfisstofnun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fyrr í dag barst völdum aðilum F4x4 tölvupóstur frá Umhverfisstofnun. Þar sem alltaf er gott að fá uppeldislegar leiðbeiningar frá „stóra bróður“, er ekki annað en sanngjarnt að deila póstinum með öllum félögum F4x4.  Pósturinn er á þessa leið:

Góðan daginn
Umhverfisstofnun hefur borist ábending um árshátíð 4x4 í Setrinu þann 29.janúar -1.febrúar 2010.  Umhverfisstofnun vill árétta að akstur utan merktra slóða í friðlandinu Þjórsárverum er bannaður og vísar í 4. tölulið auglýsingar um friðlandið í Þjórsárverum þar sem segir:
„Umferð ökutækja er óheimil utan merktra ökuslóða og skal merking háð samþykki ráðgjafarnefndar (Þjórsárveranefndar). Þó skal heimilt að nota snjóbíla og vélsleða á jökli og einnig á snjó og hjarni þegar gróðri stafar ekki hætta af“
Virðingarfyllst
Fyrir hönd Umhverfisstofnunar

Að þessu sögðu ber að ítreka að við félagar í F4x4 berum ómælda virðingu fyrir landinu okkar allra. Við förum í einu og öllu eftir náttúruverndarlögum þegar ekið er í friðlandinu sem og á leiðum utan friðlands inn til Setursins og hvar svo sem við ferðumst.  - Við áréttum að  Setrið er enn utan friðlands.
Í náttúruverndarlögum stendur m.a. að það sé bannað að keyra á vélknúnum ökutækjum utan vega. En leyfilegt að keyra  á jöklum, snjó utan þéttbýlis þegar snjór er yfir og jörð frosin. (sjá nánar í 17. gr. náttúruverndarlaga nr.44  frá 1999  hér)

Við viljum þakka Umhverfisstofnun ábendingarnar, þær eru dásamlegt innlegg  og glænýr vinkill í umræðuna um akstur á breyttum jeppum. Við reiknum með því að í framtíðinni fáum við að heyra frá Umhverfisstofnun í hvert sinn sem farið er í ferðir sem þessa og teljum að umræddur póstur sé liður Stofnunarinnar að byggja upp gott og virkt tengslanet.

Sjá spjallþráð http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=5&t=19209

Síðast uppfært: Laugardagur, 30. janúar 2010 17:47
 

Skyndihjálparnámskeið Austurlandsdeildar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 Austurlandsdeild ráðgerir að halda námskeið í skyndihjálp fyrir félagsmenn sína.

Verður námskeiðið haldið í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands.

Það er ekki komin endanleg dagssetning, en hún verður auglýst síðar.

Félagar eru hvattir til að skrá sig á heimasíðu deildarinn: www.123.is/f4x4aust.

Deildin mun niðurgreiða námskeiðið og er gert ráð fyrir að kostnaður á

félagsmann verði 1500- 2000. krónur.

 

Ferðafrelsisnefnd leitar að liðsauka

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

  • Við leitum að þér 
  • Þú ert með skoðanir
  • Vilt tryggja ferðafrelsi
  • Hefur skapandi hugmyndir um hvernig best er að koma hlutunum í verk
  • Fögnum ákaflega kandídötum af landsbyggðinni
  • Hafðu samband......núna
  • Tölvupóstfang; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Sími; 894 7997 Ágúst formaður
  • Sími; 694 8862 Didda
Síðast uppfært: Mánudagur, 01. febrúar 2010 22:28
 


Síða 1 af 9

Innskráning

Borði

Dagatal

Febrúar 2010
M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28

Á döfinni

Fim feb 11 @20:00 -
Opið hús á Höfðanum
Lau feb 20 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð
Fös feb 26
Kvennaferð 26.-28. febrúar 2010
Mán mar 01 @20:00 -
Félagsfundur mörkinni 6 kl. 20:00
Fim mar 18
Stórferð f4x4