Setrið – Ljósavél

Leiðbeiningar um notkun og umgengni við ljósavélina.

Ræsa ljósavél

  1. Snúið DC CONTROLS rofanum á “ONBíðið á meðan stjórnborðið og tölvan ræsir upp.
  2. Þrýstið á “AUTO” takkann (ekki halda inni) og eftir smá bið fer ljósavélin í gang.

 

Slökkva á ljósavél

  1. Þrýstið á takkan (rauða) til að slökkva á ljósavélinni.
  2. Snúið DC CONTROLS rofanum á OFF til að slökkva á stjórnborðinu.

ATH! Ljósavélarrofi í skála skal vera stilltur á “ON” áður en ljósavélin er ræst, annars fer hún ekki í gang og einnig áður en slökk er á ljósavélinni þegar húsið er yfirgefið.

  1. Fylla þarf á dagtanka kamínu og ljósavélar áður en farið er.

 

Bæta á dagtank ljósavélar

DSCF7044 600

 

Þegar bætt er á dagtank ljósavélar skal rauði kraninn sem myndin er af vera í þeirri stöðu sem myndin sýnir.  Þrýst er síðan á neðri takkann og honum haldið inni og rennur þá olía í tankinn. Slangan sem er utan á tanknum vinstra megin  sýnir hvað er mikið er í honum. Gætið þess að yfirfylla ekki dagtank. Sleppið rofanum og hættið að dæla þegar örlítið vantar upp á að slangan sé full.

 

Bæta á dagtank kamínu

DSCF7043 600

 

Þegar bætt er á dagtank kamínu skal rauði kraninn sem myndin er af vera í þeirri stöðu sem myndin sýnir.  Þrýst er síðan á neðri takkann og honum haldið inni og rennur þá olía í tankinn. Tankurinn er staðsettur inni í rýminu sem er innaf ljósavélarrýminu og þarf að opna hurðina þangað inn til að sjá hann.  Slangan sem er utan á tanknum vinstra megin  sýnir hvað er mikið er í honum. Gætið þess að yfirfylla ekki dagtank. Sleppið rofanum og hættið að dæla þegar örlítið vantar upp á að slangan sé full.

 

Þessi takki er til að kveikja og slökkva á ljósavélinni

  • Takkinn er notaður til að kveikja og slökkva á vélinni. Til dæmis á næturna eða ef húsið er yfirgefið til skamms tíma.
  • Til að slökkva á vélinni, er nóg að snúa takkanum á „OFF“
  • Til að ræsa vélina, skal snúa honum á „ON“
  • Þetta á við, EFTIR að vélin hefur verið ræst úti í gám.
 
Rafmagnið fer af þegar takkanum er snúið á “OFF” en vélin gengur í eina til tvær mínútur áður en hún drepur á sér.
Mikilvægt er að takkin sé stilltur á “ON” þegar komið er að húsinu.
Skal hann einnig vera í þeirri stöðu áður en húsið er yfirgefið og áður en slökkt er á vélinni úti í gámi í lok dvalar.

ATH! Ekki snerta stóra rauða takkann, hann er eingöngu ætlaður fyrir neyðarstopp!