
- This event has passed.
Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4
maí 12 @ 20:00 - 22:00
Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 2025 verður 12. maí í Síðumúla 31 (bakhús) og hefst kl. 20:00
3. grein í lögum félagsins https://www.f4x4.is/wp-content/uploads/2024/04/2023-Log-Ferdaklubbsins-4×4-1.pdf, fjalla um aðalafund.
Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Hann skal haldinn árlega í
maí mánuði.
Fundurinn skal boðaður félagsmönnum með auglýsingu á forsíðu á vefsíðu félagsins
með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundarefni svo og
fjárhagslegar tillögur, sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. Rétt til setu á
aðalfundi hafa allir félagar í öllum deildum og móðurfélagi sem hafa staðið full skil á
gjöldum til félagsins. Hinir sömu hafa einnig atkvæðisrétt á aðalfundi.
Á dagskrá aðalfundar skulu vera venjuleg aðalfundarstörf, það er:
1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Umræða um skýrslu stjórnar.
5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
8. Lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
9. Kosning stjórnar, varamanna og fastanefnda.
10.Kosning Skoðunarmanna.
11. Önnur mál.
12.Fundarslit.