Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 2025

Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 2025 verður haldinn mánudaginn 12. maí kl. 20:00 í húsnæði klúbbsins, Síðumúla 31 (gengið inn að neðanverðu), Reykjavík.

Í lögum klúbbsins (https://www.f4x4.is/wp-content/uploads/2024/04/2023-Log-Ferdaklubbsins-4×4-1.pdf) er fjallað um Aðalfund klúbbsins í 3. grein og hljóðar hún þannig:

Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Hann skal haldinn árlega í maí mánuði.

Fundurinn skal boðaður félagsmönnum með auglýsingu á forsíðu á vefsíðu félagsins með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundarefni svo og fjárhagslegar tillögur, sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í öllum deildum og móðurfélagi sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins. Hinir sömu hafa einnig atkvæðisrétt á aðalfundi.

Á dagskrá aðalfundar skulu vera venjuleg aðalfundarstörf, það er:

  1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  4. Umræða um skýrslu stjórnar.
  5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
  6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
  7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
  8. Lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
  9. Kosning stjórnar, varamanna og fastanefnda.
  10. Kosning Skoðunarmanna.
  11. Önnur mál.
  12. Fundarslit.