
- This event has passed.
Haustferð Hústrukka
08.09.2017 @ 19:00 - 10.09.2017 @ 17:00

Haustferð hústrukka 2017
Rangárvellir, Heklubraut, Skjólkvíar, Valafell
Ágætu félagar
Við vonum að þið hafið átt gott ferðasumar. Ákveðið var á fundi á Básum um Hvítasunnu að fara í stutta haustferð á Hekluslóðir dagana 8.-10. september.
Dagskrá:
Föstudagurinn 8. sept:
Fólk hittist og hefur næturstað við Þorleifsstaði undir Þríhyrningi. Ekið er upp hjá Keldum, áfram að Reynifelli og síðan stuttan spöl að Þorleifsstöðum.
Laugardagurinn 9. sept:
Lagt af stað kl 10:00. Farið um Heklubraut austan Heklu, yfir í Skjólkvíar, með Valahnjúkum, í Valagjá, kringum Valafell og höfum næturstað í Áfangagili.
Sunnudagurinn 10. sept.:
Afslöppun og vonandi hægt að borða saman morgunverð undir berum himni. Dagskrá tæmd og hver heldur til síns heima.
Allir áhugasamir á bílum við hæfi velkomnir. Vonumst til að sjá sem flesta.
Gaman væri að heyra um þátttöku.
Hústrukkanefndin: Grétar Hrafn Harðarson s: 892 1480 gretarhrafn@simnet.is
Trausti Kári Hansson s: 894 9529 halendingur@gmail.com
Viggó Vilbogason s: 892 3245. taeknivelar@taeknivelar.is