« All Events
Kvennaferðin í Setrið
06.03.2020 @ 17:00 - 08.03.2020 @ 12:00
ALLAR STELPUR ÚT AÐ LEIKA!
Það er komið að árlegri Kvennaferð f4x4 í Setrið helgina 6.-8. mars 2020
Heildarfjöldi einstaklinga í ferðina er 45 konur og þegar þeim fjölda er náð lenda konur sjálfkrafa á biðlista. Mikilvægt er að amk einn aðili í bílnum sé félagsmaður 4×4.
Markmið ferðarinnar er að fara í Setrið (http://www.f4x4.is/skalar/setrid/), hálendisskála Ferðaklúbbsins 4×4. Brottfaratímar verða auglýstir á Fb grúppu Kvennaferðarinnar (KVENNAFERÐ 4X4 2020) þegar nær dregur en reiknað er með að leggja af stað í 2-3 hópum á föstudeginum.
Þessi ferð er fyrir konur sem hafa áhuga á að kynnast betur fjallaferðum að vetri til. Með í ferð verða reyndar fjallakonur frá klúbbnum sem munu leiðbeina þátttakendum og aðstoða eftir bestu getu. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á sínum farartækjum. Við skráningu þurfa þátttakendur að taka fram reynslu bílstjóra og kóara.
Til að taka þátt í ferðinni verður að vera á breyttum jeppa, útbúnum til fjallaferða að vetri til. Til viðmiðunar, þá er hægt að nota eftirfarandi töflu miðað við þyngd jeppa – þó skal hafa í huga að meta þarf færð/veður og getu bíls/bílstjóra áður en lagt er af stað. Ef þú ert í vafa með þinn bíl, heyrðu þá í okkur. Hér má einnig finna ýmsar nytsamlegar upplýsingar: https://www.f4x4.is/um-ferdaklubbinn/ferdast_a_fjollum/
35″ dekk, 1,5 -2 tonn
38″ dekk, 2-3 tonn
44″ dekk, 3-4 tonn
>44″ fyrir þyngri jeppa
Á laugardagskvöldinu verður sameiginleg máltíð (lambalæri og meðlæti), aðrar máltíðir þarf að taka með sér. Allar drykkjarvörur þarf að taka með sér.
Verðið er ekki alveg frágengið en verður stillt í hóf að sjálfsögðu. Greitt er fyrir gistingu, sameiginlega kvöldmáltíð á laugardagskvöldinu og kvennaferða límmiðar á bílana. Erum að skoða hvort við fáum ekki styrki á vel völdum stöðum 🙂
Kvennanefndin stendur fyrir skemmtilegum hittingum fyrir ferðina og það er um að gera að fylgjast með á FB í hópnum “Kvennaferð 4×4 2020” (https://www.facebook.com/groups/10150124097050241/) því þessir hittingar verða auglýstir þar og á “F4x4 spjallsíða” hópnum. Velkomið að henda inn myndum úr fyrri ferðum í þessa hópa. Um að gera að bæta í áhugasömum vinkonum í kvennaferðarhópinn sem gætu viljað splæsa í eins og einn jeppa og skella sér með 😀 Tja eða bara fá lánaðan jeppa hjá vini eins og gerst hefur 🙂