Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Landgræðsluferð 10 til 12 júní 2016

10.06.2016 - 12.06.2016

Nú er loks komið að okkar árlegur landgræðsluferð í Þjórsárdalinn eða helgina 10 – 12 júní.

Í samvinnu við Hekluskóga fékk Ferðaklúbburinn 4×4 úthlutað svæði vorið 2008 í Þjórsárdal við Þórðarhöfða og Núpsskóg til að vernda, hefta fok, rækta og endurheimta birkiskóg. Undir leiðsögn Hreins Óskarssonar hjá Hekluskógum hefur þar verið sáð grasfræi, áburður borinn á og gróðursettar þúsundir trjáplantna árlega síðan sem hefur orðið til þess að dalurinn hefur tekið gífurlegum breytingum.
Haldið verður áfram þar sem frá var horfið á síðasta ári og farið sunnar á holtið.

Vonandi mun fríður hópur manna taka vasklega til hendinni í príðilegu veðri á laugardeginum og ekki líta upp frá störfum fyrr en allur áburður er dreifður og allar trjáplöntur gróðursettar. Í framhaldinu verður svo grillað á tjaldstæðinu í Þjórsárdal og átt góða stund fram eftir kvöldi. Þess má geta að frítt er fyrir hópinn á tjaldstæðinu alla helgina.

Kveðja

Umhverfisnefnd

Details

Start:
10.06.2016
End:
12.06.2016