Þetta var hörkuferð sem farin var laugardaginn 28. okt. Stór og mjög skemmtilegur hópur, alls 23 bílar. Miklu meiri snjór en nokkur bjóst við. Svo skall á þetta líka fína "Litludeildarveður" þegar leið á daginn. Gaman að sjá svo marga í sinni fyrstu ferð og er óhætt að segja að veturinn fari vel á stað hjá Litludeild.