Fórum á þrem bílum yfir Langjökul í Kerlingarfjöll á skírdag og gistum þar, á föstudag var stefnan tekin á Setrið í frábæru veðri og endað á toppi Hofsjökuls. Á laugardag tókum við því rólega og fórum bara í Kerlingarfjöll aftur, krakkarnir fóru í pottinn og síðan var tekið til við að grilla. Ókum heim á sunnudag norður Kjöl.