Vorferð vesturlandsdeildar. Farið var í Jökulheima á föstudeginum. Færðin var þung og blaut. Við vorum ekki kominn fyrr en um miðja nótt. Eftir 6 klst svefn átti að skella sér á jökulinn en vegna slæmrar veðurspár var tekin ákvörðun að snúa heim. Það skipti kannski ekki öllu þar sem maður fékk nóg að brasa í krapanum frá Jökulheimum niður að Hrauneyjum. Þetta var fín ferð og vel til þess fundinn að prófa nýja jeppann.