14. október 2019 kl 20:00 Fyrir nýtt félagsfólk verður nýliðakynning á Ferðaklúbbnum 4x4 í Síðumúla 31 (gengið inn frá porti fyrir aftan húsið). Allir velkomnir sem vilja heyra almennt um klúbbinn! Dagskrá verður nokkurn veginn svona : Kynning á Feðaklúbbnum 4x4 Vetrarstarfið 2019 til 2020 Næsta nýliðaferð Spjall og hressing
Næsta ferð Litlunefndar F4x4 verður sunnudaginn 20. október. Ferðin er eingöngu fyrir bíla með hátt og lágt fjórhjóladrif, og mega bílar ekki vera meira breyttir en 35”. Mikilvægt er að hafa staðgott nesti, góðan klæðnað, lyf, góða skapið og einhverja afþreyingu fyrir yngstu meðlimina ef ferðin skildi ílengjast eithvað. Ferðin mun byrja á bílastæði bensínstöðvar [...]
Næsti félagsfundur Eyjafjarðardeildar 4x4 verður haldinn föstudaginn 1.nóvember í Golfskálanum að Jaðri Þetta er sameiginlegur fundur deilda á norður- og austurlandi með Aðalstjórn F4x4 Hvetjum alla félagsmenn Eyjafjarðardeildar til að mæta og kynnast því sem aðrar deildir eru að gera.
Sameiginlegur fundur allra deilda verður haldinn í golfskálanum á Akureyri föstudaginn 1. nóvember 2019 og hefst kl. 20:00. Dagskrá fundarinns verður annars gróflega svona: Eyjafjarðardeild: Sagt frá Landsfundi og hvað var ákveðið þar. Erindi um Vaðlaheiðagöng Stjórn RVK: Erindi um jeppabreytingar og ferðamennsku. Erindi um stórferð F4x4 Mývatni 19-22. mars 2020. Skagafjarðardeild: Erindi um stikun [...]
ÁRSHÁTÍÐ 4X4 ~ 2019 Árshátíðin verður haldin á Hótel Örk í Hveragerði þann 2.nóvember nk. DAGSKRÁ: 16-18 Happy hour á barnum á Hótel Örk 18-19 Fordrykkur 19-22 Borðhald, skemmtidagskrá með tónlistarívavi, fjöldasöng og fjöri 22-01:30 Dansleikur með stuðhljómsveitinni Hobbitunum og Föruneytinu frá Suðurnesjabæ MATSEÐILL: Léttsteiktur humar á salatbeði, marineraðir tómatar og sítrónusósa Grilluð [...]