Úrsögn úr Landvernd

Félagið hefur sagt sig úr Landvernd skv. meðfylgjandi:

Reykjavík 14. janúar 2021

Hér með tilkynnist stjórn Landverndar úrsögn Ferðaklúbbsins 4×4 úr Landvernd.

Ástæða uppsagnarinnar er stefna Landverndar sem hefur gengið of langt í öllum sínum gjörðum og gengið þvert gegn hagsmunum Ferðaklúbbsins 4×4.  Í þessu sambandi er einnig  bent á yfirlýsingu Landverndar vegna Vonarskarðsins en þar er stefna Landverndar sú að loka skuli ökuleið um örfoka sanda fyrir umferð og á sú stefna Landverndar ekkert skylt með náttúruvernd.

Stefna Landverndar undanfarin ár hefur verið öfgakennd og markast af harðlínu sem farið hefur langt út fyrir svið náttúrverndar að okkar mati.

Því hefur stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 ákveðið að vegna stefnu Landverndar  gagnvart málefnum tengt hagsmunum njótenda og notenda á hálendi Íslands, að segja sig úr félaginu og hætta öllum stuðningi við það.  Einnig segjum við okkur úr öllum nefndum og óskum eftir því að nafn okkar verði fjarlægt sem félagsaðila innan samtakanna.

Fh. Ferðaklúbbsins 4×4

Sveinbjörn Halldórsson

formaður Ferðaklúbbsins 4×4