Árshátíð Ferðaklúbbsins 4×4

Árshátíðin verður haldin helgina 28.-30. október 2022 á Hótel Laugarbakka
Búið er að taka hótelið frá fyrir okkur og verður herbergjunum haldið til 15. október en þá verður þeim úthlutað.
Árshátíðin verður haldin í hátíðarsal hótelsins þannig að þar sparast leigubílar 😊
Hótel Laugabakki er í Miðfirðinum og er því gott aðgengi fyrir deildir klúbbsins til að taka þátt í þessum fagnaði okkar. Á hótelinu eru 56 misstór herbergi og er gisting fyrir um 130 manns.
Verðið er eftirfarandi:
Gisting fyrir tvö í tvær nætur og miðar á hátíðina. = 30.000,-
Gisting fyrir einn í tvær nætur og miði á hátíðina. =  21.000,-
Gisting fyrir tvö í eina nótt og miðar á hátíðina. =     24.000,-
Gisting fyrir einn í eina nótt og miði á hátíðina. =     12.500,-
Ef bara er keyptur miði á hátíðina þá er verðið =       6.500,-
Innifalið í verðinu: Uppábúin rúm og morgunmatur auk þess sem miði á árshátíðina fylgir og ekki er matseðillinn af verri endanum, en boðið verður upp á forrétt, nautakjöt og kaffi og konfekt á eftir. Skemmtunin verður í okkar anda, létt músík (Trúbator), skemmtileg spurningarkeppni og síðan en ekki síst dans tónlist sem verður búin til á staðnum.
Hægt að panta: Hótelið býður hlaðborð á föstudagskvöldi og léttara hlaðborð í hádegi á laugardegi. Einnig verður hægt að kaupa nestis pakka og kaffi til að taka með sér í bíltúrinn á laugardeginum.
****Dagskráin fyrir helgina hljóðar svo****
Föstudagur:
Tékk inn byrjar kl.15
17:00 Happy hour á barnum
18:30 Kvöldmatur (hlaðborð) fyrir þá sem panta mat
20:00 Jeppaspjall og heimsókn í heitu pottana (opnir til kl.23) ef fólk er í þeim gírnum
Laugardagur:
8-10 Morgunverðarhlaðborð
9:00 Bíltúr
12:00 Hádegisverðarhlaðborð fyrir þá sem panta í það (og fara ekki í bíltúrinn)
17:00 Happy hour á barnum
18:30 Opnað inn í sal
19:00 Matur borinn fram, síðan leiðir veislustjóri okkur í gegnum kvöldið með skemmtilegri dagskrá sem endar á balli þar sem dansinn mun duna fram eftir öllu
Sunnudagur:
8-11 Morgunverðarhlaðborð
Tékk út á hádegi í síðasta lagi