Fórum á 6 bílum frá Fljótstungu í Borgarfirði upp á Arnarvatnsheiði laugardagsmorgunn 10. mars og héldum sem leið lá upp að Arnarvatni stóra þar sem reynt var að dorga í gegnum ís. Ferðin sóttist ágætlega þangað, en svo skall á vitlaust veður svo það tók okkur alla nóttina að komast upp á Kjalveg yfir Stórasand. Þaðan var svo ekið norður í Blöndudal og síðan heim á leið þjóðveginn. Þrátt fyrir erfitt færi og lítinn svefn þá var þetta frábær ferð.